Snorrastofa
valmynd
Snorrastofa Snorrastofa
  • Þjónusta við gesti
    Þjónusta við gesti Milliforsíða →
    • Kynningar, leiðsögn og fyrirlestrar
    • Sýningar
    • Verslun
    • Ráðstefnu- og fundaaðstaða
    • Gisting

    Snorrastofa veitir ferðamönnum þjónustu og fræðslu í Gestastofu. Hún er á jarðhæð Reykholtskirkju — Snorrastofu, en þar er sýning um Snorra Sturluson, auk þess sem boðið er upp á styttri og lengri kynningar um miðaldir, Snorra og Reykholt.

    Opnunartímar Gestastofu

    1. maí – 31. ágúst, alla daga vikunnar 10 – 17

    1. september – 30 apríl, virka daga 10 – 17

    Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

    Verðlisti…

    Við bjóðum gestum styttri og lengri kynningar um Sögu Snorra, bókasafn og kirkju. Lifandi kynning fyrir hópa hrífur og skapar nýja vídd. Fyrirlestrar og leiðsögn eru á íslensku, norrænum málum, ensku og þýsku.

    Í Gestastofu er ein meginsýning, Saga Snorra, en auk þess eru í anddyri hennar Perlur í Reykholtsdal og Húsafellssteinar. Sumarið 2017 var opnuð sýning í gamla héraðsskólanum vegna 70 ára afmælis Snorrastyttunnar, Snorrahátíðin 1947 í lifandi myndum – og sjötugur hljóðheimur. Aðgang að þessari sýningu þarf að panta sérstaklega.

    Í gestastofu er rekin verslun með bókum, hljómdiskum og íslensku handverki.

    Allur hagnaður af rekstri verslunar rennur til uppbyggingar í Reykholti á vegum Snorrastofu og Reykholtskirkju.

    Snorrastofa hefur yfir eftirfarandi aðstöðu að ráða til ráðstefnu- og fundarhalda:
    – Ráðstefnu og hátíðarsal fyrir allt að 100 manns í sæti.
    – Þrjú fundarherbergi fyrir 6-12 manna fundi.
    – Bókhlöðusal Snorrastofu fyrir 50-60 manns í sæti.
    – Safnaðar- og sýningarsal með aðstöðu til léttra veitinga.

    Gistirými Snorrastofu er ætlað innlendum og erlendum fræði- og listamönnum.

  • Viðburðir
  • Snorrastofa
    Snorrastofa Milliforsíða →
    • Bókhlaða
    • Rannsóknir og fræði
    • Stjórnir, skipurit og stofnskrá
    • Saga stofnunarinnar
    • Starfsmenn
    • Samstarf
    • Umsýsla

    Snorrastofa sinnir rannsóknum, starfrækir bókhlöðu, annast tónleikahald í Reykholtskirkju og veitir ferðamönnum þjónustu í gestastofu, sem er á jarðhæð Reykholtskirkju-Snorrastofu.

    GPS punktar fyrir Reykholt:  N64° 39′ 53.661″ W21° 17′ 32.068″

     

    Snorrastofa vinnur að rannsóknum í miðaldafræðum og sögu Borgarfjarðar og miðlar þekkingu með sýningum, alþjóðlegum ráðstefnum, málþingum, fyrirlestrahaldi, námskeiðum og útgáfu.

    Snorrastofa í Reykholti er sjálfseignarstofnun með sérstaka stjórn og starfar á grundvelli laga, nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.

     

    Snorrastofa, sem er menningar- og miðaldastofnun, var formlega stofnuð í minningu Snorra Sturlusonar á dánardægri hans 23. september 1995

    Starfsmenn Snorrastofu eru bæði heilsársstarfsmenn, sumarstarfsmenn og rannsóknarfélagar

    Formleg tengsl og samstarf Snorrastofu við aðrar stofnanir.

    Húsnæði, hirða svæðisins og eftirlit með fornminjum.

  • Reykholt
    Reykholt Milliforsíða →
    • Reykholtskirkja
    • Saga Reykholts
    • Gengið um sögustaðinn Reykholt
    • Gisting og þjónusta
    • Nágrenni Reykholts

    Reykholt er einn sögufrægasti staður landsins, þjóðmenningarstaður. Sagnaritarinn, fræðimaðurinn og höfðinginn Snorri Sturluson settist að í Reykholti árið 1206 og óf þaðan þéttriðið net valda og áhrifa um allt land — og reyndar alla leið til Noregs. Á miðöldum var kirkjumiðstöð í kaþólskri tíð og á dögum Snorra miðstöð lærdóms og valda.

    GPS punktar fyrir Reykholt:  N64° 39′ 53.661″ W21° 17′ 32.068″

    Saga Reykholts spannar meira en þúsund ár og hér voru oftsinnis kirkjuhöfðingar og valdsmenn um lengri og skemmri tíma.

    Saga Reykholts spannar meira en þúsund ár og hér voru oftsinnis kirkjuhöfðingar og valdsmenn um lengri og skemmri tíma.

    Sögu Reykholtsskóla verður til haga haldið hér á vefnum.

    Í Reykholti er heilsárshótel, Fosshótel Reykholt og í nágrenninu eru nokkrir möguleikar á gistingu, bæði í svokallaðri bændagistingu og á hótelum.

    Afþreying og náttúruperlur í nágrenni Reykholts.

  • Snorri Sturluson

Viðburðir frá október 2019

Væntanlegir viðburðir
  • 2021
  • mars
  • febrúar
  • janúar
  • 2020
  • desember
  • nóvember
  • október
  • september
  • ágúst
  • júlí
  • júní
  • maí
  • apríl
  • mars
  • febrúar
  • janúar
  • 2019
  • desember
  • nóvember
  • október
  • september
  • ágúst
  • júlí
  • júní
  • maí
  • apríl
  • mars
  • febrúar
  • janúar
  • 2018
  • desember
  • nóvember
  • október
  • september
  • ágúst
  • júlí
  • júní
  • maí
  • apríl
  • mars
  • febrúar
  • janúar
  • 2017
  • desember
  • nóvember
  • október
  • september
  • ágúst
  • júlí
  • júní
  • maí
  • apríl
  • mars
  • febrúar
  • janúar
  • 2016
  • desember
  • nóvember
  • október
  • september
  • ágúst
  • júlí
  • júní
  • maí
  • apríl
  • mars
  • febrúar
  • janúar
  • 2015
  • desember
  • nóvember
  • október
  • september
  • ágúst
  • júlí
  • júní
  • maí
  • apríl
  • mars
  • Þú ert hér:
  • Snorrastofa.is
  • Viðburðir

Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson. Náttúrulaus sagnalist, eða lifandi gróður og lífrænir ávextir?

1. október 2019, kl. 20:00
Bókhlaða Snorrastofu

Um forna sagnagerð og steingervinga textafræðinnar í ljósi vistrýni. Athugið breyttan tíma á fyrirlestrum vetrarins.

Fyrsta prjóna-bóka-kaffi vetrarins

3. október 2019, kl. 20:00
Bókhlaða Snorrastofu

Fimmtudaginn 3. október verður fyrsta prjóna-bóka-kaffi Snorrastofu í bókhlöðunni. Allir eru velkomnir til að njóta góðrar samveru, spjalla, deila alls kyns hugmyndum, vinna handverk, spá í bækur safnsins og fá sér kaffisopa. Prjóna-bóka-kaffið verður hálfsmánaðarlega í vetur frá og með 3. október.

Námskeið: Sturla Þórðarson og Sturlunga

Margar dagsetningar
Til skiptis í Snorrastofu og Landnámssetri, lokin í Vínlandssetri

Námskeið Snorrastofu í Reykholti, Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi, Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi og Sturlufélagsins. Námskeiðið verður á mánudagskvöldum kl. 20–22, til skiptis í Landnámssetri og Snorrastofu auk lokakvölds í Búðardal, sjá dagskrá (pdf) og hér fyrir neðan. Skráning fer fram hjá Símenntunarmiðstöðinni á Vesturlandi á vef www.simenntun.is / simenntun@simenntun.is / s. 437 2390 Verið öll velkomin – Sækja dagskrá…      

Tónleikar á laugardaginn: Kór Menntaskólans á Laugarvatni

12. október 2019, kl. 15:00
Reykholtskirkja

Kór Menntaskólans að Laugarvatni verður við æfingar í Borgarfirði helgina 11.- 13. október næstkomandi og heldur tónleika í Reykholtskirkju laugardaginn 12. október kl. 15. Stjórnandi og undirleikari er Eyrún Jónasdóttir. Á efnisskrá kórsins er fjölbreytt tónlist, bæði íslensk og erlend og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Auk Eyrúnar leika kórfélagar með […]

Kvæðamannafélagið Snorri í Reykholti

Margar dagsetningar
Bókhlaða Snorrastofu

Opinn fundur og æfing. Allir velkomnir.

Prjóna-bóka-kaffi

Margar dagsetningar
Bókhlaða Snorrastofu

Notalegar kvöldstundir í bókhlöðunni. Allir velkomnir.

Prjóna-bóka-kaffi

Margar dagsetningar
Bókhlaða Snorrastofu

Notalegar kvöldstundir í bókhlöðunni. Allir velkomnir.

Fyrirlestrar í héraði: Sjálfsbókmenntir í sögulegu ljósi – stigmögnun sjálfstjáningar

22. október 2019, kl. 20:00
Bókhlaða Snorrastofu

Þriðjudaginn 22. október 2019 kl. 20. Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í menningarsögu við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands flytur. Árum saman voru félagssagnfræðingar tregir til að nýta sér við rannsóknir persónulegar minningar fólks nema í mjög afmörkuðum tilgangi. Á síðari árum hefur orðið grundvallarbreytinga á hugmyndum fræðimanna um stöðu slíkra minninga í vísindarannsóknum. Í fyrirlestrinum verða […]

  • Leita á vefnum
  • English
  • Snorrastofa, 320 Reykholt
  • (+354) 433 8000
  • snorrastofa@snorrastofa.is
  • Veðurgögn frá yr.no

Leita á vefnum

Leita í safnkosti

×