Snorri Sturluson og Reykholt - Málþing
Önnur staðsetning
Vegna útkomu tveggja bóka, Snorri Sturluson and Reykholt og The Buildings of Medieval Reykholt, verður haldið málþing í Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur í Reykjavík, þriðjudaginn eftir Hvítasunnu, 22. maí 2018 kl. 16-18:30.
Flutt verða stutt innlegg, sem brugðist verður við og tekur hvert þeirra 12 mínútur að hámarki.
Þingstjóri: er Svanhildur Óskarsdóttir.
Efni:
Orri Vésteinsson: Hugtakið miðstöð/valdamiðstöð og hugtakið vald. Mikilvægt? Viðbrögð Viðar Pálsson.
Sverrir Jakobsson: Íslenskur aðall? Viðbrögð Helgi Þorláksson.
Bergur Þorgeirsson: Hugtakið „ literacy“. Mikilvægt? Viðbrögð Gísli Sigurðsson.
Torfi H. Tulinius: Arfleifð Snorra á 13. og 14. öld. Viðbrögð Guðrún Nordal.
Egill Erlendsson: Takmörkuð landgæði í Reykholti, nauðsyn selja. Viðbrögð Benedikt Eyþórsson.
Guðrún Sveinbjarnardóttir: Fornleifar og ritheimildir. Viðbrögð Gunnar Karlsson.
Helgi Þorláksson: Húsin í Reykholti og Snorri Sturluson. Viðbrögð Orri Vésteinsson.
Guðrún Harðardóttir: Reykholtskirkja um daga Snorra - nokkrar vangaveltur. Viðbrögð Guðrún Sveinbjarnardóttir.
Viðar Pálsson: Fjöldi klerka í Reykholti - Viðbrögð Benedikt Eyþórsson.
Gert verður hlé með léttum veitingum.
Allir eru velkomnir.
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.