Námskeiðið Borgfirðinga sögur – rætur reifaðar og rýnt í tengsl
Landnámssetur í Borgarnesi
Þriðja kvöld: Bjarnar saga Hítdælakappa. Leiðbeinandi Óskar Guðmundsson rithöfundur.
Á námskeiðinu verður fjallað um Borgfirðinga sögur (aðrar en Eglu) á fjórum þriðjudagskvöldum í febrúar – maí 2017, til skiptis í Landnámssetri og Snorrastofu. Óskar Guðmundsson rithöfundur í Véum flytur fyrirlestra – og efnt er til umræðna meðal þátttakenda. Þótt sögurnar séu ekki meðal þekktustu Íslendinga sagna, þá búa þær allar yfir sögulegum þokka – og hafa að sviði hið víðfeðma goðaveldi Snorra Sturlusonar. Engu að síður eru sögurnar innbyrðis ólíkar.
Námskeiðið allt kostar kr. 13.500 og hægt verður að skrá sig á stök kvöld fyrir kr. 3.500
Skráning fer fram á vef Símenntunarmiðstöðvarinnar í Borgarnesi eða í s.: 437 2390 - einnig á námskeiðskvöldunum sjálfum.
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.