13 Skrifla
Hverasvæðið hér hefur yljað fólki í meira en 1000 ár – og því horfum við í vissum skilningi hér á eina elstu hitaveitu í heimi. Áður fyrr voru hverirnir á þessu svæði tveir: Skrifla og Dynkur. Vatnið úr þeim var ólíkt og því talið að þeir væru úr ólíkum vatnsæðum, en þegar borað var eftir heitu vatni á áttunda áratug 20. aldar hafi æðarnar fallið saman. Þaðan kemur vatnið í hitaveituna fyrir húsin á staðnum í dag og er kennt við stærri hverinn, Skriflu. Þaðan rann líka vatnið allt frá öndverðu í Snorralaug og sömuleiðis lá þaðan gufustokkur um hríð að bæjarhúsum. Fyrir nokkrum árum var hlaðið grjóti utan um hverinn. Hleðslan
er svo krýnd með listaverki – andliti Snorra Sturlusonar – höggvið í stein af Páli Guðmundssyni á Húsafelli.