17 Miðaldagata, til hægri:
Vatnstanksvegur, Reykholtsgata
Miðaldagata liggur ofan við Höskuldargerði. Ef gengið er til hægri
liggur leiðin í norðaustur – í átt að landi Breiðabólstaða. Af miðaldagötunni liggja stígar, annars vegar Vatnstanksvegur til vinstri upp á hæðina sem vatnstankurinn er og hins vegar Reykholtsgata – reiðleið til hægri – austanvert við Reykholtsþorpið. Þessi leið var að hluta til fyrsti akvegur að Reykholti að norðan. Þar í götunni eru leifar hliðs, steyptir stólpar frá því fyrir miðja síðustu öld.
Skógalundur
Að ofanverðu við miðaldagötuna í átt að Breiðabólstöðum er Skógalundur með minnismerki sem vígt var 21. júní 1999, á aldarafmæli Guðmundar Illugasonar (1899–1986) frá Skógum í Flókadal.
Fegurð himinsins
Þegar gengið er lengra eftir miðaldagötunni í norðurátt er komið að áningastað sen ætlaður er ferðamönnum til að skoða fegurð himinsins – stjörnur og norðurljós að vetrarlagi.