Saga Reykholts
Saga Reykholts spannar meira en þúsund ár og hér voru oftsinnis kirkjuhöfðingar og valdsmenn um lengri og skemmri tíma. Sjá Kirkjusaga Reykholts – Geir Waage
Sögu Reykholtsskóla verður til haga haldið hér á vefnum.
Reykholtsskóli
Borgfirðingar hafa átt tvo héraðsskóla, Hvítárbakkaskóla og Reykholtsskóla. Hvítárbakkaskóla stofnaði Dalamaðurinn Sigurður Þórólfsson árið 1905 eftir dvöl sína í Danmörku þar sem hann kynntist hugmyndum Grundtvigs um alþýðufræðslu og lýðháskóla.
Árið 1931 fluttist skólahaldið að Reykholti með stofnun héraðsskóla þar. Í Reykholti starfaði arftaki Hvítárbakkaskólans og fylgdi skólaþróun í landinu þar til að skólahaldi lauk þar árið 1997. Tvö síðustu árin var skólinn deild í Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi. Lauk þar merkum áfanga í skólasögu héraðsins og landsins alls. Lýður Björnsson skrifaði bókina, Héraðsskólar Borgfirðinga, um þennan hlut borgfirskrar skólasögu og Snorrastofa gaf úr árið 2013.