RÍM-verkefninu hrundið af stað í Snorrastofu
Laugardaginn 8. febrúar s.l. kom Lilja Dögg Alfreðsdóttir í Snorrastofu til undirritunar á viðbótarsamningi ríkisins og stofnunarinnar, sem markar formlegt upphaf rannsókanrverkefnisins Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM). Með samningnum er Snorrastofu falin dagleg umsýsla með verkefninu næstu 5 árin. Framundan er því auglýsing mennta- og menningarmálaráðuneytisins um styrki til úthlutunar. Lilja gerði arf Snorra Sturlusonar að umtalsefni og að henni væri nú efst í huga að auka hæfni unga fólksins til að lesa og þekkja um leið okkar helsta höfund miðalda, Snorra Sturluson. Lilja notaði ævisögu Óskars Guðmundssonar um Snorra máli sínu til stuðnings og las uppúr henni um námsskrána í Odda forðum daga.
Fréttatilkynning um málefnið:
RÍM-verkefnið formlega hafið í Reykholti
Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Bergur Þorgeirsson, forstöðumaður Snorrastofu, skrifuðu að morgni laugardags 8. febrúar 2020 undir viðauka við rekstrarsamning Snorrastofu og ríkisins, sem gildir næstu fimm árin. Fór athöfnin fram í Snorrastofu í Reykholti.
Undirritunin staðfestir að mennta- og menningarmálaráðherra felur fyrir hönd ráðuneytis síns og ríkisstjórnarinnar Snorrastofu daglega umsýslu með verkefninu Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM). Stofnskrá þess var undirrituð í Reykholti í ágúst 2019 en ríkisstjórn Íslands stofnaði til RÍM í tilefni af því að liðin voru 75 ár frá stofnun lýðveldis á Íslandi.
Meginmarkið RÍM-verkefnisins er að efla rannsóknir sem tengjast þeim stöðum á Íslandi þar sem ritmenning blómstraði á miðöldum. Rannsóknirnar munu m.a. tengjast fornleifafræði, sagnfræði, textafræði og bókmenntafræði.
Reiknað er með að 35 milljónum kr. verði árlega veitt til verkefnisins í fimm ár frá og með árinu 2020.
Yfirstjórn verkefnisins er hjá mennta- og menningarmálaráðuneytinu sem auglýsir innan skamms eftir umsóknum um styrki. Þegar umsóknir hafa borist skipar ráðuneytið úthlutunarnefnd. Hún gerir tillögur til ráðherra mennta- og menningarmála sem úthlutar styrkjum að höfðu samráði við forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra.
Eins og áður segir verður öll dagleg umsýsla vegna RÍM-verkefnisins í höndum Snorrastofu í Reykholti.
Um undirritun samstarfsyfirlýsingar í ágúst 2020...
Myndir frá heimsókn Lilju Daggar Alfreðsdóttur (Guðl.Ósk.).
Myndasafn
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.