Reykholtshátíð 2017
Reykholtshátíð verður haldin í Reykholtskirkju dagana 28. til 30. júlí 2017
Að venju verða fernir tónleikar á hátíðinni auk fyrirlestrar Snorrastofu, Um fall Ólafs konungs Haraldssonar.
Föstudagur 28. júlí kl. 20.
Opnunartónleikar Reykholtshátíðar
Schola Cantorum ásamt hljóðfæraleikurum hátíðarinnar.
Verk eftir Arvo Pärt og J.S. Bach
Laugardagur 29. júlí kl. 13
Fyrirlestur Snorrastofu á Reykholtshátíð: Um fall Ólafs konungs Haraldssonar. François-Xavier Dillmann prófessor flytur (á íslensku).
Laugardagur 29. júlí kl. 16
Kammertónleikar
Finnski strengjakvartettinn Meta4 ásamt Þórunni Ósk Marinósdóttur
Laugardagur 29. júlí kl. 20
Söngtónleikar
Dísella Lárusdóttir sópran ásamt Nínu Margréti Grímsdóttur píanóleikara.
Sunnudagur 30. júlí kl 16
Lokatónleikar Reykholtshátíðar
Finnski strengjakvartettinn Meta4 ásamt hljóðfæraleikurum hátíðarinnar.
Nánari upplýsingar um flytjendur og efnisskrá eru birtar á heimasíðu hátíðarinnar, reykholtshatid.is
Hlökkum til að taka á móti þér í Reykholti í sumar!