Í fótspor Egils Skallagrímssonar í Jórvík!
Undanfarna mánuði hefur á vegum Landnámsseturs, Snorrastofu og Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands staðið yfir námskeið i Egilssögu þar sem ýmsir fróðir menn hafa verið fengnir til þess að leiðbeina og stjórna umræðum um söguna.
Óhætt er að segja að viðtökur hafi verið góðar og er það von að slík námskeið geti verið árlegur viðburður hér um slóðir, en rúmlega 20 manns sækja námskeiðið sem haldið er til skiptis á heimaslóðum Snorra Sturlusonar í Reykholti og á slóðum Egils í Borgarnesi.
Dagana 21.-25. mars næstkomandi er fyrirhugað að halda utan og fara á slóðir Egils Skalla-Grímssonar á Bretlandseyjum, nánar tiltekið í York.
Ferðaskrifstofa Vesturlands hefur í samvinnu við námskeiðshaldara undirbúið 4 daga ferð sem hefst 21. mars. Flogið verður beint til London og farið í lest til York. Þriðjudaginn 22. og miðvikudaginn 23. verða skoðuð söfn og sögustaðir í York. Víkingasetrið JORVIK er þar hápunkturinn, en einnig verður skoðuð The Minnster, sem er dómkirkjan í York, með sögusýningu í kjallaranum. Gamli miðbærinn innan borgarmúranna verður þræddur og margt fleira skoðað. Fimmtudaginn 24. skírdag er aftur tekin lest til London og farið á Stuðmannatónleika um kvöldið í Royal Albert Hall. Flogið verður heim á föstudaginn langa 25. mars.
Kjartan Ragnarsson mun taka að sér leiðsögn í ferðinni og leiða okkur um slóðir Egils í Jórvík. Innifalið í ferðinni er flug og flugvallagjöld, gisting með morgunverði í 4 nætur, lestarferðir og miði á tónleika Stuðmanna í London, fimmtudagskvöldið 24. mars.
Heildarverð er 65. 900 á mann í tvíbýli, aukagjald í einbýli er kr. 16.000 kr.
Karl hjá Ferðaskrifstofu Vesturlands tekur við skráningum í ferðina og gefur nánari upplýsingar í síma: 437 2323.
Öllum áhugasömum er velkomið að slást í för!
Ferðaáætlun:
21. mars
9:00 - 12:00 - Flug Keflavík-Heathrow
14:21 - 17:30 - Heathrow til York - neðanjarðarlest til Kings Kross Station en þaðan er bein tenging til York.
22. og 23. mars
Til ráðstöfunar í York
24. mars
9:38 - 11:52 - lest York til Kings Cross. Um kvöldið tónleikar Stuðmanna í Royal Albert Hall
25. mars
20:45-23:45 Allur dagurinn til ráðstöfunar. Flug Heathrow-Keflavík
Opnunartímar skrifstofu Snorrastofu og Bókhlöðu
Virka daga 10:00–17:00
Prjóna-bóka-kaffi
Opnunartímar Gestastofu
1.maí - 31.ágúst:
Alla daga 10:00 - 17:00
1.sept - 30.apríl:
Virka daga 10:00 - 17:00
Á öðrum tímum eftir samkomulagi.