8 Héraðsskólinn gamli, Reykholtsskóli
Reykholt gekk í endurnýjun lífdaga með starfsemi héraðsskólans 1931–1997. Guðjón Samúelsson teiknaði bygginguna sem þykir bera meistara sínum vitni. Guðjón Samúelsson (1887–1950) lauk fyrstur Íslendinga námi í byggingarlist (arkitektúr) og var húsameistari ríkisins frá 1920 til dauðadags. Meðal annarra þekktra listaverka Guðjóns húsameistara má nefna byggingu Þjóðleikhússins og Hallgrímskirkju í Reykjavík.