Tónleikar: Mannskoret Ljom frá Noregi
Karlakórinn Ljom frá Noregi heldur tónleika í Reykholtskirkju laugardaginn 25. maí næstkomandi kl. 16.
Kórinn var stofnaður árið 1895 og stjórnandi er Jørn Oftedal. Kórfélagar eru 29 talsins.
Söngskráin er fjölbreytt: kirkju- og óperutónlist, þjóðlög og dægurlög (popp og rokk).
Aðgangur ókeypis, verið öll velkomin.