Fornsagnanámskeið: Um bókmenntaleg einkenni Íslendingasagna
Landnám Grænlands, fundur Vínlands. Grænlendinga saga og Eiríks saga rauða.
Fimmta kvöld námskeiðsins sem vera átti í Landnámssetrinu í Borgarnesi 20. febrúar 2018 verður 20. mars.
Leiðbeinandi Örnólfur Thorsson norrænufræðingur.
Um bókmenntaleg einkenni Íslendingasagna, persónur og leikendur, sögusvið, stíl og orðaforða með dæmum úr ýmsum áttum, m.a. úr Vínlandssögum. Örnólfur vinnur nú að formála nýrrar endurbættrar heildarútgáfu sagnanna sem byggir á útgáfu sem gerð var fyrir þremur áratugum og kennd er við Svart á hvítu.
Skráning fer fram á vef Símenntunarmiðstöðvar Vesturlands í Borgarnesi og á námskeiðsstað.
s.: 433-6929 / netfang: simenntun@simenntun.is
Verið velkomin.