28. febrúar, 2020
Afreksmaður segir frá
Þriðjudagskvöldið 18. febrúar sagði Skagamaðurinn Ingólfur Geir Gissurarson frá ferð sinni á hæsta tind jarðarinnar, Mount Everest. Hann náði tindinum 23. maí árið 2013 og sagði í fyrirlestri sínum frá þeirri glímu, undirbúningi og ferðalaginu. Fyrirlesturinn, sem fram fór í félagsheimilinu og upplýsingamiðstöðinni Brúarási í Hálsasveit var samvinnuverkefni Snorrastofu, Brúaráss og Sögu jarðvangs. Kynnir kvöldsins var Þórunn Reykdal forvígismaður Sögu jarðvangs, sem heimamenn hafa um nokkurt skeið unnið að. Segja má að efni kvöldsins hafi höfðað vel til samfélagsins vegna hins mikla áhuga á útivist og heilbrigðum lífsstíl, sem er ofarlega á baugi um þessar mundir. Undirtektir voru afar góðar og áhugaverðar umræður spunnust í lokin.
Nánar um fyrirlesturinn og myndir Ingólfs…
Myndir Guðl. Óskars.